..Girlz Rule..
Boooston! :D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1738 dögum
21.07.2007 12:01:29 / asta

Afmælisbaaaarn! :D

Blessuð veriði! :D

birthday girl x3

Míns litla á afmæli í dag.. 17 ára og læti :P, ekkert bílpróf samt, en mér gæti ekki verið meira sama um það :P

Gærdagurinn minn var bara ágætur, byrjaði ekkert alltof vel.. ældi eitthvað um nóttina :S og var með magaverk svona fram undir hádegi, svo ég fór ekki í vinnuna, JEEEIJ, enn einn dagurinn þar sem mér leiðist like hell og allir að vinna og maður getur ekkert gert! :(

Eeeen já, svo komu Vignir og Sara um 6 leytið og fóru að baka köku, mamma hennar Söru átti afmæli í gær.. or so said Sara ;) hehehe.. mjög flott kaka hjá þeim sko, tvöföld Betty Crocker kaka með ljósbláu kremi og hjarta úr bleiku kremi og með gúmmí-böngsum :)

Seinna um kveldið horfði ég svo á lokaþáttinn af The Bachelor Rome, og ég varð ekkert smáááá fúl með niðurstöðuna.. :( .. Sadie var miklu betri kostur (já ég veit, ég er like TOTAL Bachelor nööörd :$)
Svo kom Erla til mín þegar það var svona hálftími eftir, svoo kíktum við aðeins á hana Aldísi okkar, sem er/var allavega veik í gær :S völdum fyrir hana spólu til að horfa á og fórum svo í 10-11 og ég var að gera stórinnkaup :') heheh.. nooot.. en já :P keypti samt fyrir alveg 3000kall.. hef aldrei keypt fyrir svona mikinn pening í 10-11! :o

Síííðan fórum við til Davíðs, hann og Svavar voru að "lana" .. bara þeir tveir :)
Hahaha, þeir voru að koma frá Subway þegar við fórum til þeirra og já, bátarnir voru víst ekki nógu heitir svo Erla bauðst til að hita þá .. ekki það að hún kynni á örbylgjuofninn :')
Svo missti hún like hálft meðlætið á gólfið þegar hún var að labba upp stigann :P hehehe.. kannski ekki svo mikið, en allavega eitthvað ;)

Erla þurfti að fara svo um hálf 1, vinna túmorrow (í dag) kl 9 og svo var Erla á mömmu sinnar bíl, og aumingja mamma var farin að hafa áhyggjur af bílnum sínum ;)
Ég varð samt eftir hjá strákunum, við fórum svo í 10-11 og biðum eftir eikkerju fullu fólki.. voooooða gaman sko ! :') hahaha, vorum bara að hanga með fullu fólki uppí 10-11.. skutluðum svo Matta, sem var piiiissfullur, heim. Þurftum like að troða honum inní bílinn, hann var svooo ekki að vilja fara.. skutluðum líka Söndru Maríu heim í leiðinni :)
Fórum svo einn Laugarvegsrúnt, ég, Svavar, Davíð, Jói og Gísli.. og vááá, þessi rúntur tók ábyggilega 1 og hálfan tíma or some! :o 8| noooot liking it, ég var að sofna þarna afturí! :o

Eeeen svo skutlaði Davíð mér heim eftir rúntinn, þá var klukkan korter yfir 3 or some :)
Ég skellti bara Friends í tækið, like always, og sofnaði yfir því :)

----

Ég var vakin í morgun kl 08:20.. Vignir og Sara komu til mín, það er sko hefð hjá okkur hérna heima að afmælisbarnið er alltaf vakið eeeeldsnemma og maður gefur því pakkana og svo fer það aftur að sofa þegar það hefur opnað pakkann og þakkað fyrir sig.. :) en já.. þau komu og já hvað séééé ég ! :o.......Fallegu tvöföldu Betty Crocker kökuna með ljósbláa kreminu og hjartanu og gúmmí-böngsunum :P hehehe.. og það fyrsta sem ég hugsaði: "Á mamma hennar Söru þá ekkert afmæli 20. júlí??"
heheh :P þetta var nettis, Sara bað mig að fá mér núna því hana langaði svo í sneið áður en hún færi.. heheh :p .. ég var aftur á móti aaalltof þreytt þannig ég fór bara atur að sofa.. :P

Vaknaði svo aftur kl 11 þegar mamma hringdi í mig frá Portúgal og óskaði mér til hamingju og allt það ;) .. ég æææætlaði að fara að sofa aftur en mundi þá eftir kökunni og bara varð að smaaakka :P Hún taste-ar alveg vel sko ;) Held samt að maður myndi fá ógeð ef maður borðar meira en 2 sneiðar, ég er samt bara búin með eina.. því kremið er svo þykkt og seðjandi og svona :P

En já, ég veit ekkert hvað míns ætlar að gera í daaag, ætla að fara svo samt með Erlu, Aldísi (vonandi ef hún er orðin frísk!) og Fríðu út að borða í kveld.. ef Aldís kemst þá getum við farið á Pizza Hut eins og mig langar, en annars þarf Erla að fá lánaðan bílinn og já, þá förum við líklegast bara á American Style :) :P hehe ;)

En já, þeir sem eru búnir að óska mér til hamingju eru: Erla, Davíð, Svavar, Ingibjörg, Carlos, Bjössi, Sandra M, Gísli, Jói, næturvörðurinn í 10-11, Sveinn Darri, Alexander, Vignir, Sara, Lolla og m&p.. og mig langar endilega að bæta fleirum við ! ;) so get movin' and congratulate me! :haha:

Happy Birthday Jolie *gabrielle* -- Happy Birthday -- birthday

-Ásta* 17 ára, finally!


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 01:21:58 / asta

7 mánuðir! <33

Hææææ.

Agaaaaain...

Ég er víst ekkert ýýýkja góð í þessu bloggeríi lengur haaa?.. :P

En samt sem áður er ég í mood-i núna til að blogga, svo já! Hananú!!:D

Í dag fór ég ekki í vinnuna, var með "æluna" ef svo má segja, í nótt.. er búin að borða fremur lítið í dag, helst þá bara nokkra bita af skyri og popp í bíó.. :S :S

Ég svaf sem sagt bara til 12 or some, reyndi að borða en það gekk ekkert alltof vel :S.. svo ég fór bara í lappann, horfði á Friends, spilaði kapal og horfði á meira Friends.. chattaði smá við Carlos á msn og í símann :) 7 mánuðir hjá okkur í dag! <33 :D :D :**
Hann er í USA núna :( kemur heim á þriðjudaginn.. semsagt eftir 5 daga :) .. hann er búinn að vera núna í 2 vikur úti! .. úff.. soldið erfitt, eeeeen já :) ..

Mér var svo bara boðið í bíó með Binna, Þyrí og Jóni-Þóri.. Binni og Þyrí eru að vinna á Hrafnistu og það er frítt fyrir þau í dag í bíó or some og mega bjóða einum gesti með :)
Miiig langaði að sjá 1408, en það varð uppselt á hana áður en kom að okkur.. svo varð uppselt á Die Hard 4, ekki það að mig langaði að sjá hana, en þá var bara Death Proof eftir.. með Kurt Russell.. Og eins og við mátti búast, þar sem QuentinTarantino leikstýrði myndinni, þá var hún freeeeeemur speeeees! :D hahaha.. en ég mæli svoooo með henni samt! :haha: það var húmor í þessu ;) ..

Ég var að koma heim fyrir svona hálftíma.. fórum í 10-bíó .. :) .. callaði Bjartey, hún er að fara til útlanda í nótt, Spánar með kórnum :) .. verður í 2 vikur :P verður ábyggilega raddlaus þegar hún kemur heim ;)

Ég ligg/sit hérna uppí rúmi núna og horfi með öðru auganu á What a Girl Wants ;) :D góð mynd sko :P fííílana ;) enda er DÆDUR BRETI í henni! :o :o :haha: my girls KNOOOOW I like that :D hahahhaha :'D

En ég heeeld ég sé komin með nóg núna, enough sharing for this hour :)

-ásta <33

Ps. Ég á afmæli á laugardaginn, 21. júlí ;) :D allir að muna það :D .. oooog já, ég vil þakka Aldísi fyrir að hún er til í að ættleiða mig þá :haha:! :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 20:42:48 / asta

Vitiði...Ég HELD að málið sé að BLOGGA!! :O

Tjaaaaa já!

Uhhh....Hæ!

Hvað segiði gott... :lol: ?

Ég HELD (eins og fyrirsögnin segir) að málið sé að BLOGGA áður en þessi síða rennur gjörsamlega út í sandinn! :o Sammála???

Hvað hefur gerst síðan ég bloggaði síðast? ... hmmmm... JÁ! Ég fór semsé til Boston og það var hreint út sagt ÆÐISLEGT! :haha:
Það er líka búið að ákveða að fara aftur til Boston (í aðra verslunarferð of course) haustið 2008! :D
Mér fannst ég kaupa soldið mikið, en þegar heim var komið og ég tók allt uppúr til að sýna pabba og Carlosi þá fannst mér þetta eiginlega bara ekkert mikið :| sveeeeekkelsi sko!

Ég hef mestmegnis verið að vinna bara.. það er ágætt, er að meikaða í fatadeildinni sko ;)
Hlakka til að fá að sjá hvað ég fæ útborgað maðuuuuur!:D

Þann 4. júní varð hann Carlos minn 19 ára gamall, og var planið að fara út að borða með foreldrum hans á Ítalía um kveldið :)
Við áttum pantað borð kl 8, en fyrst var m&p boðið í kaffi&köku heima hjá Carlosi (köku sem btw ÉG bakaði...og Carlos hjálpaði smá til ;))
Svo á Ítalíu þá biðum við í klukkutíma eftir matnum því þjónninn GLEYMDI okkur.. eða sem sagt pöntuninni.. en svo var maturinn samt alveg þess virði að bíða eftir sko :) .. mjög góður!
Eftir matinn fórum við heim til hans og hann opnaði pakkana, 2 pakkar.. 1 frá mér og 1 frá m&p ;) hahaha.. hann fékk BLEEEEEIKA skyrtu með hvítum röndum frá m&p (sem ég náttúrulega valdi ;)) og peysu, bol og The Godfather pakkann á DVD frá mér :$ :)

Hvað fleira hefur skeeeð ? .. hmmm :$... jaaa Erla mín fór til Þýskalands í 2 vikur, og var að koma heim í dag .. ég er að fara til hennar þegar ég er búin að klára að blogga;)

Við Carlos áttum hálfs árs anniversary í gær, 18. júní! :haha: <33

17. júní á sunnudaginn... ég&Carlos sváfum bara til 12... horfðum á eikkerja mynd og fórum á landsleikinn um kveldið .. djöööfull var þetta geðveikur leikur maður!! :haha: hefði svo EKKI viljað missa af honum :P .. hahaha! Serbarnir voru alveg æfir þegar flautað var af og ætluðu bara að hjóla í dómarann sko! :D

Ég fór á Fantastic 4 II í bíó í síðustu viku, mjög góð mynd, mæli með henni, hef reyndar ekki séð fyrri myndina svo ég veit ei hvor er betri :)

Hahahaha, það var verið að taka upp auglýsingu í Fjarðarkaup um daginn.. semsagt Fjarðarkaups-auglýsing sko ;) .. og eitthvað svaka fagfólk í þessu, vá þetta var svo spes! :D hahah, gellan sem lék í auglýsingunni var bara búin að koma upp förðum og hárgreiðslu-dæmi í kaffistofunni og svo var skipt og skipt og skipt um föt þar til hún var alveg pööööfikt :P hahaha sérstakt sko ! :P

Svo er það annars bara bústaðurinn um helgina held ég, ég, m&p og Carlos, að ég viti, förum :) Það á að vera spáð mjög góðu veðri um helgina og ég ÆTLA mér að REYNA að ná henni ERLU sem er víst orðinn freeeekar TÖNUÐ eftir 2 vikur í ÞÝSKALANDI! ;) En ég fæ að sjá hana eftir smá ;) .. þar sem ég man ei meir sem ég get mögulega sett í þetta blogg mitt :)

-ásta*

Ps. kooooommentið nú! :o


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 01:06:10 / asta

Kominn tími á puntablogg? JÁ ÞAÐ HELD ÉG NÚ!

Vitiði.. það er alltof langt síðan ég bloggaði, ég veit.. en ég ætla að taka bara eitt gott PUNTKABLOGG á þetta! Um það helsta sem ég man eftir sem búið er að gerast :D..

  • Bústaðarferðin!!!! Bara snilld sko!
  • -myndir komnar á /goldig :D Allir að kíkja!
  • -nýtt blogg þar líka!! :D Um bústaðinn!
  • Prófin....ég náði ÖLLUM!!
  • -ég NÁÐI ensku!!!8|
  • -féll samt í íþróttum :$ vissi það fyrir..
  • Byrjuð að vinna like a maniac í Fjarðó!
  • -nennnnnniss....:(
  • -vantar samt money! :P
  • -ég mun sjá um brauðin í sumar víst ;)
  • America's Next Top Model byrjað.
  • -ein stupid gella þar telur að model's ropi ekki or some..
  • -ljóska eða hvað!?
  • Aldís&Erla að fá gjafir fyrir dugnað sinn í að hjálpa Sigga að læra fyrir þýskuprófið ;) Alltaf verið að græða maður :P
  • Lokaþátturinn af "My Big Fat Valentina" um daginn..
  • -Valentina&Orestes giftu sig..
  • -Chicci went into labor..
  • -pirrandi ljóskan þarna varð ólétt..
  • -Valentina&Orestes eignuðust 2 börn..strák&stelpu
  • -Valentina varð aftur feit..
  • - (':
  • Boston á þriðjudaginn 22. maí!!!! 8|
  • -vinn frá 9-almost12..
  • -á tíma í plokkun og litun kl 12 á lipurtá þá..
  • -Þröstur skutlar mér, mömmu, Þórdísi&Þuru á flugvöllinn þegar mamma er búin að vinna kl 1!! :D
  • -HLAKKA SVO TIL!!!! ...
  • -alltof mikið búið að vera að plana þetta síðustu 2 vikurnar!!! :D
  • -mamma&þórdís bara hjá eikkerri konu sem hefur trilljón sinnum farið til Boston og búnar að fá að vita nákvæmar leiðir í Outlet og helling þannig! :')
  • -ég á 790$ :D
  • -mamma á 760$..
  • -samt er það bæða fyrir 50þús kall! :D heppin ég að kaupa mína $ viku seinna þegar $ var búinn að droppa niður í 63 kr. :haha:
  • 5 mánuðir hjá okkur Carlosi á föstudaginn síðasta! ;* <33
  • Ég fæ nýtt sléttujárn á morgun! :D
  • -vinkona Rannveigar (mömmu Carlosar) reddar mér því úr heildsölu..
  • -það á að kosta um 12þús kall..
  • -ég fæ það á 6.100. :D
  • Erla að fara í ökuskóla 2 á morgun! :D
  • -bara 5 vikur í afmælið hennar!
  • -stutt í að hún fari til Þýskalands í 2 vikur :o
  • -þegar hún kemur heim aftur verða bara 10 dagar í afmælið! :o
  • -hún ætlar að taka bóklega prófið áður en hún fer út...
  • Hörður frændi varð 45 ára í gær..
  • -afmælið haldið kl 3 í dag..
  • -Lolla passaði sæti fyrir mig..
  • -við fórum öllsömul í singstar:D
  • -við SSKK að tala um að komast í SSKK-bústaðarferð vonanadi í sumar ;)
  • -ég var brussa og setti pestó niður í rúmteppið hennar Lollu :$
  • -Lolla sýndi Geira&Binna afmælisgjöfina mína :D...
  • -Geir er búinn að dömpa Kareni...
  • -'88 gella að reyna við hann á balli um daginn.. heavy flott gella sko! ;D
  • Ég þarf að mæta til vinnu á mrg... svo.. góða nótt ;*

-ásta*

Ps. Ætla bara að minna aftur á nýjar Myndir&Blogg frá bústaðarferðinni á www.blog.central.is/goldig .. muna að tékka á þessu ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 00:01:54 / asta

1 próf eftir :)

Hæ,

Vitiði, ég er í rosalegur "blogg-skapi" akkurat núna :D Kannski það sé bara vegna þess að ég hef ekkert betra að gera en tja.. well :)

Undanfarnar 2 vikur hef ég bara verið í prófum og að chilla og svoleiðis :) Fór í afmæli til Þorra&Ísaks frænda síðasta sunnudag, það var fínt sko! :D .. Góður matur og svona eins og alltaf ;)

Mér hefur gengið mest svona semí bara í prófunum, rústaði reyndar dönsku- og stærðfræði prófunum :haha: hlakka til að sjá hvað ég fæ útúr þeim ;)
Ég er veeeel á mörkunum með að ná í félagsfræði, og tja, ég var samt ágæt í þýskunni og ágæt líka í íslenskunni :)

Ég var í prófi í gær, og næsta prófið mitt er bara á mánudaginn, enskuprófið :). Á þriðjudaginn byrja ég svo að vinna :( :( vá hvað ég hlakka EKKI til !! En maður verður nú að fórna einhverju til að eignast money...í þessu tilviki finnst mér ég SKO vera að eyða öllu sumrinu mínu :( .. ég fæ líka bara viku frí (sem ég er svoleiðis búin að vera að kvarta undan síðustu vikurnar :S) og ég held ég noti alveg 5 daga af þessum 7 sem ég fæ þegar ég fer til Boston! :o .. sem SÖKKAR! ..
Ég kemst þá líklegast ekki til Ísafjarðar í sumar eins og ég ætlaði mér :/

En svo er það bara bústaður framundan hjá okkur stelpunum :D .. ég, Erla & Aldís í GÚDDÍ fíling uppí bústað! Vá hvað ég hlakka til ! :haha::haha::haha: ...

Gvuð, vitiði, þið sem horfið á Lost þættina....þessar þáttaraðir enda ekki fyrr en árið 2010!! 8| þúst.. það eru alveg 3 þáttaraðir eftir :o ég bara SKIL EKKI hvernig þetta fólk ætlar að reyna að halda einhverjum almennilegum söguþræði í þessu .. :o

En well, í dag vaknaði ég bara hjá Carlosi mínum ;*** Hann svona eiginlega vakti mig um hálf 12 leytið, en mig var að dreyma svoooo vel að ég þverneitaði að vakna svo ég svaf til svona korter yfir 12 :) Þá horfðum við á restina af Step Up og svo var fengið sér að ééééta, spilað og hann fór bara í tölvuna og ég sofnaði í 2 tíma í viðbót :P ..
Þetta var mesti letidagur í heimi í dag sko! Við vorum bara á náttfötunum til svona 5.. eða allavega ég :$ :)
Pabbi sótti mig um 6 leytið, fórum í fiskibúð, svo í Krónuna svo heim. Matur...tölvan...og ennþá tölvan :)

Ég svaf svo mikið í dag að ég er ennþá vel vakandi sko! Og enginn á msn :( .. nema Erla jú, en hún er að læra... :P

Oooohh, það kom svona truflanahljóð í tölvunni, þið vitið, eins og þegar síminn manns er að fara að hringja or some.. þetta gerist geðveikt oft með símann minn og ég alltaf tek hann upp og verð voða spennt yfir hver sé að hringja/senda sms....og svo bara....EKKERT!...ótrúlega svekkjandi maðuuuuur! ... :P

Eeeen já, ég ætla samt að hætta núna bara ;) Endilega kommentið á þetta meistarablogg mitt ;D

*ásta<33


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 18:22:01 / asta

Prófin framundan ..

 

Hææ. 

Vitiði, þessi síða er víst ekkert að meika það neitt :$.
Ekki það að hún hafi eitthvað verið að “meika” það hérna áður fyrr :P.
En ég þarf VIRKILEGA að fara að taka mig á í blogginu, og núna ætla ég ekki að koma með svona óraunhæft markmið, að bloggja 3ja hvern dag :P , heldur bara þegar ég viiiiirkilega nenni því :lol:. Og ég lofa að ég ætla samt að reyna að nenna því oftar:).

Í dag vaknaði ég heima hjá Carlosi við að mamma hringdi í mig kl. 11:20.
Ég var búin að lofa að fara með kl. 1 á tónleika sem slíka, sem voru haldnir í einhverju húsi inní Reykjavík.
Gunnhildur var að spila á bjöllur og það var rosa flott hjá henni ;). Algert krútt sko! :D vá ég dýrka hana:D ( þetta voru sko bara tónleikar hjá fötluðum börnum:))
Það voru 14 nemendur sem að fluttu eitthvað músíkalskt atriði, sumir sungu, aðrir spiluðu á hljómborð / píanó og aðrir spiluðu á gítar og trommur og alls kyns :D.
Eftir tónleikana fórum við, ég, Þórdís og mamma aðeins inná spítala að heimsækja afa :). Amma var þar líka :). Ég var bara eitthvað að horfa á nágranna þarna hehe, svo skutluðumst við í Kringluna að kaupa einhverjar sokkabuxur á Þórdísi or some :P. Ég var ekkert búin að borða um daginn og klukkan var orðin 3 svo að við fórum bara á Stjörnutorgið og fengum okkur McDonald’s! :haha: Þið getið giskað 3svar á hvað ég fékk mér!! ;):D

Síííííðan skutluðu þær mér bara heim, og ég fór að læra undir þetta blessaða dönskupróf sem ég er að fara í á morgun! Jiiibbbííí.. ég er sú eina í mínum áfanga sem fer í prófið... hahahaha :’) voða gaman já ;) .. get alveg sjálfri mér um kennt, þar sem ég mætti ekki í öll prófin, hefði VEL getað náð símantinu hefði ég nennt að reyna það :lol:
En ég er allavga í pásu núna, er búin að vera að glósa einhver málfræðiatriði af myschool frá því ég kom heim!.. mér finnst eins og hausinn á mér sé úttroðinn af málfræðiflækjum, lýsingarorð, fornöfn, nafnorð, sagnir... æjj vá.. kemst ekki meira inn sko.. ! 8| .... Ég ætla svo að reyna að fá lánaðar glósur hjá Erlu þar sem hún er ekki að fara í þetta próf ;).

-ásta :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 17:58:53 / asta

Bútaður ójee! ;D

Hæææj!:D

Ég var víst búin að LOOOFA að blogga í dag ;) Bloggaði í gær á /goldig, svo endilega kíkjið á það ;)
Í dag var náttúrulega bara skólinn :). Voða gaman í ensku, hnuss, þurfti að lesa upp eitthvað úr mogganum á ensku, eitthvað um söngvakeppni framhaldsskólanna, segja hver vann og eitthvað rugl!
Svo var ég bara í eyðu og spilaði við Bjarna&JónBjörn:D. Það var bara fun.. ég var að rústa þeim í Gúrku!!:haha:
Svoo var bara tími...:$ Svo fundur&matarhlé...vorum þá bara að spila...Gúrku of course! ;)
Svo fór ég í stæ-próf, var ekki aaalveg að meikaða.. og þetta er 12.kafli, sem er like...30% af lokaprófinu:o:o

Eftir skóla sótti Þórdís mig, Erlu&Fríðu uppí skóla og skutlaði okkur uppí Fjarðarsól. Hehe, eftir 1 tíma komum við allar út bara sem ein stór F-R-E-K-N-A!! HAHAHA:haha:! En tjah... brúnar líka 8) dædar&brúnar!;)
Keyptum okkur svo ís á Gamla-Skalla (veit ekki hvað þetta heitir núna..)

Ég var svo bara að koma heim núna :) eða fyrir svona korteri or some :) Ætla að kíkja á glósur fyrir Málsöguprófið á morgun :)

Og vitiði hvað!:o:o8|!?!? ALLAR líkur á að við stelpurnar; ég, Erla, Aldís&Bjartey förum í bústaðarferð helgina 11.-13. maí!!:haha::haha:! Vona það maður!!.. Ætluðum að fara í mars or some.. en það fór út um þúfur :/ Bara eftir að fá 100% svar frá Bjartey og þá er þetta allt klappað og klárt...og örlítið straujað meira að segja líka!:o:D

sfg4.jpg

En ég ætla að pilla mér í eitthvað skemmtilegt glósudæmi ;) Bæææjj...og kommenta NÚ!!:D

-Ásta*


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 18:29:01 / asta

Tja..

Hæ..

..Tja!

Ætli það sé ekki kominn tími á eitt blogg hérna hjá mér... og það fyrir LÖNGU síðan! Ég verð að fara að vera dúlegari í þessum bloggbransa!8| Eins og ég var alltaf að skrifa 1 blogg á dag:o Míns verður að fara að gera það aftur... Ókey, héðan í frá LOFA ég að blogga annan hvern dag!.....or......tja kannski 3ja hvern dag:lol:. Eruði ekki að fíla það bara?:)

Ég sit hérna fyrir framan tölvuna, tja (wow ég verð líka að fara að slaka á í "tja-inu"!) eða öllu heldur hálf-ligg fyrir framan tölvuna. Sit allavega uppí rúmi með lappann hennar mömmu, að horfa á Friends of course! :D They're so awsome!:haha:

Smá innskot hérna úr Friends (atriðið þegar Chandler heldur að Monica ætli í 'boob-job'):

Chandler: "There she is, my perfectly proportioned wife."
Rachel: "Don't look at me. I never get his jokes."
Monica: "Thank you?"
Chandler:
"No, no. Don't thank me. Thank you. Do you know there is not one thing I would change about you? Not one single thing. And definitely not...two sigle things. "
Monica: "Okay, you're being weird. Do you want sex, or did you do something bad?"
Chandler:
"No. No. No. I just love the way you look. I am warm...for your form."
Monica: "Okay, you know the old classics like, you know, 'You look nice'? They're still okay!"
Chandler: "Well, yes. But 'You look nice' could mean that I was saying, 'Your face looks nice.' I want to compliment your body. I mean, I wouldn't change it at all. And more specifically, I wouldn't want anything to get any bigger."
Monica:
"Okay.."
Chandler: "I mean...you wouldn't want any part of me to get any bigger, would you? ... Don't answer that."

Hahahaha:haha: Það er alveg fyndið hvað það er EKKI HÆGT að fá leið á þessum þáttum!!! :D Enda eru þeir my favorite;)!
En jáhá! Í gær og í dag er búið að vera að gefa alls konar nammi og bjóða uppá frítt far heim vegna kosninganna sem verða í næstu viku held ég (eða það stendur á skjávarpanum:$). Hahaha, það var boðið uppá endalaust mikið af svona sykurlausum karamellu-sleikjóum í gær, og í dag var boðið uppá eftirhermu-græna-ógeðið af Malters..:S yukk!
Eftir skóla, þegar ég sat uppí í sófanum og var að bíða eftir að Carlos yrði búinn.. þá heyrði ég í einum 4.árs nema segja eitthvað um að allt þetta sem þau hefðu verið að gefa, nammið sko.. hefði verið útrunnið!8| Að sleikjóarnir (sem ég hakkaði í mig í gær og fór heim útaf í eyðunni minni því mér var svo DRULLUILLT í maganum!!!:evil: ) hefði runnið út í JANÚAR!!!!........ ég er hreint út sagt HNEYKSLUÐ!! Ég líð ekki svona keppnisskap! Að bjóða kjósendum útrunnið nammi! Ónei!! :evil:

En jáh.. ég veit ekki um hvað þetta blogg átti að vera... varð eiginlega um ekki neitt.. en ég ætla að hætta núna bara.. :)

Seasons --> And I mean that with all my heart, and I bet there are more of you out there!

-ástaJoð*

*Ætla að koma með eitt nördalegt hérna sem Carlos sendi mér á msn....: Lestu þetta orð afturábak: "raksápupáskar" :') (tek það fram að eikker nölli á ircinu sagði þetta...) ;) :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 13:43:47 / asta

Fös-lau.

Ble ble..

Ætla bara að segja frá gærdeginum mínum og svona :) Nenni ekki að hafa þetta alltof langt ;)
Í gær fór ég auðvitað bara í skólann.. Það var ágætt, ég var búin kl 12:35 því félagsfræði féll niður 8). Carlos skutlaði mér þá bara heim og ég fékk mér að éta og svona.. Síðan bara langaði mig svo ótrúlega mikið að horfa á teiknimyndina Atlantis (ein uppáhalds teiknimyndin mín for sure!) svo að ég náði í stigann og klöngraðist uppá loftið í tölvuherberginu og leitaði að myndbandskassanum :D. Hehehe, það tók soldinn tíma.. var ready með kók og popp ready við sjónvarpið svo að poppið var orðið kalt þegar ég kom niður með spóluna :/ Eeeen tjah, þetta reddaðist..

Fílaði mig allavega bara GEÐVEIKT að vera ein heima að horfa á Atlantis! :haha: Það var mergjað stuð sko! ..
Síðan hafði ég EKKERT að gera eftir það þannig ég fór að spila Forseta við sjálfa mig í alveg klukkutíma or some :')
Fór síðan bara eitthvað að reyna að komast á msn....var að því í hálftíma or some.. Svo kjaftaði ég við Carlos í símann eitthvað :)... síðan bara matur, kjúlli! ;)

Eftir mat hringdi ég í Davíð, hann var víst að keyra.. en pabbi hans svaraði ég vissi ekki að þetta væri pabbi hans... Samtalið var eitthvað á þessa leið:

-Ég: Hæ...
-Pabbi Davíðs: Halló. (sagt með skringilegri rödd of course)
-Ég: Ertu sofandi??
-Pabbi Davíðs: Ja, ég er hérna milli svefns og vöku...
-Ég: Hver er þetta?
-Pabbi Davíðs: Haraldur heiti ég..
-Ég: Ó...Er Davíð þarna?
-Pabbi Davíðs: Já, hann er hérna að keyra..
-Ég: Já ókeei...
-Pabbi Davíðs: Hann hringir bara í þig aftur á eftir... Hver er þetta?
-Ég: Ásta...
-Pabbi Davíðs: ...Ása?
-Ég: Nei, Ásta...
-Pabbi Davíðs: Jæja, Ásta, Davíð hringir á eftir. Bless.
-Ég: Bæ.

Hahahahaha x'D Ég missti mig þegar ég var búin að skella á.. En svo hringdi Davíð seinna um kveldið, og auðvitað þótti honum þetta voða fyndið:P. En svo hringdi Siggi í hinn símann og Davíð var að tala við okkur bæði í símana tvo.. Og á einhverjum tímapunkti var Siggi á loudspeaker og ég var að tala við Sigga þannig :D hahaha þetta var sérstakt.
Um hálf 11 minnir mig komu Svavar, Siggi og Davíð að ná í mig.. fórum á Devito's þar sem ég fékk að smakka Devito's pizzu....borðaði 3 bita og neitaði svo að borða meir.
Síðan skiptu Svavar og Siggi um sæti... þannig Siggi var driverinn. Svavar settist þá afturí og fór að sötra bjór af þessum 2 kippum sem hann var með í bílnum ;).
Við keyrðum upp að Morgunblaðshúsinu, sem er við hliðiná Rauðavatni. Hjá Rauðavatni átti nefnilega að vera einhverslags "djöflakirkja" en það eina sem við fundum þarna í "skóginum" voru 2 bústaðir....annar VIRKILEGA creepy og ég vildi helst læsa hurðunum þegar við vorum sem næst honum. :S Þegar þetta var þá var ég búin með 1 og hálfan bjór hjá Svabba, og var soldið jolly... Ég ætla að kenna því um þetta hræðslukast mitt!

Sííííðan var tekinn rúntur bara um Laugarveginn, svo pikkað Elvu&Tönju upp af Laugarveginum og skutlað þeim uppá Hótel Sögu, þar var víst árshátíð hjá Subway. Davíð og Svabbi fóru með þeim inn, en við Siggi nenntum ekki svo við fórum bara smá að rúnta þarna í kring.. komum svo aftur og sóttum þau. Komum við á Esso stöðinni í setberginu svo að míns gæti skroppið á klóið. Enduðu allir þarna inni að kaupa sér nammi or some.:P
Svo var þeim skutlað heim bara og síðan mér. Ég fór bara að taka til úr töskunni minni, ég hellti óvart smá bjór ofaní hana, og sem sagt á gólfið í bílnum hans Svavars líka:^).. Er svona að spá í að henda bláu spilunum mínum, þessum víkinga-asnalegu-spilum:P. Helltist soldið á þau...

En mín fór svo bara að sofa, vaknaði kl hálf 1. Fór þá að taka smá til, fram að spila Forseta (aftur við sjálfa mig já...) og éta og helling bara. Nei þetta er búinn að vera frekar rólegur dagur. Var svo á msn bara og að mixa diska til að brenna fyir Önnu-Lovísu til að hafa hjá henni í kveld. Smá chill þar bara, hittingur :).

En ætla að láta þetta gott vera núna.. aftur varð þetta svona ofboðslega langt hjá mér! En tjah...

-ásta*


 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 16:35:21 / asta

Blogg? Já ég held það sé málið!

Hæ folks.

Jæja ég hef barasta EKKERT nennt að blogga undanfarið...go figure.
En ég held að blogg sé málið í dag.. ég nenni aftur á móti samt ekki að blogga bara heilan haug um allt sem gerst hefur undanfarið, þannig ég ætla að blogga bara um helgina.. það er alveg nóg :)

Föstudagur:

Ég fór í skólann bara, meikaði samt ekki að vera þarna allan daginn því ég fékk einhver svakaleg krampaskot í magann :S .. ég veit ekkert hvað olli því, en ég sleppti þá síðasta tímanum. Fór heim til Carlosar bara og lagði mig. Svaf alveg vel lengi.. þega mér var farið að batna var klukkan orðin svona 5.. og þá fórum við á McDonald's og átum kvöldmat.
Síðan fórum við bara aftur heim til hans að chilla..
Við Lolla vorum búnar að plana Djellí-kveld, þannig Carlos skutlaði mér til Lollu um 8 leytið. Þá skutlaði Jóhanna mamma Lollu okkur niðrá Bónusvídeó þar sem við leigðum myndina Talladega Nights með Will Ferrel. Síðan fórum við uppí Holtanesti þar sem Melkorka *bitch* afgreiddi okkur. Mér fannst hún bara frekar dónaleg sko.. Við vorum að kaupa nammi fyrir 400kr (ég veit, nammigrísir:$) og sögðum henni að setja mikið af öllu sem við völdum.. og við ætluðum ekkert að velja neitt mikið, bara nokkrar tegundir.. þá sagði hún eftir smá stund: "Viljiði ekki bara frekar benda á það sem þið ætlið EKKI að fá? Þá gengur þetta kannski hraðar..." og hún sagði þetta með þvílíkum gelgjutón eða þúst þannig.. ég var bara inní mér sko: "Oh...tussa!"
Eeeen við létum það ekkert á okkur fá.. fórum bara hjem til Lollu, stungum myndinni í, settum nammið í nammiskálina frægu og horfðum á myndina :). Hún var fín sko.. myndin :) .. fyndin og svona :P. Eftir myndina horfðum við á Lost og svo á einhverja mynd sem var í imbanum.. ég sofnaði yfir henni, ætlaði svo að fara að labba heim um 1 leytið en nei.. var þá ekki bara kominn SNJÓR og ég var á INNISKÓM!.. svooo ég fékk Hörð (pabba Lollu) til að skutla mér heim. Fór þá bara smá í tölvuna og svo að sofa..

Laugardagur:

Vaknaði, fór í vinnuna.. ágætt í vinnunni...as always.. veistu það er aldrei neitt GAMAN í vinnunni. heldur yfirleitt aldrei LEIÐINLEGT... Þórdís nefnilega spyr mig oft: "Hvernig var í vinnunni?" og ég segi alltaf: "Bara ágætt...ekkert gaman samt.." .. þá fór ég að pæla í því hvað það er alltaf ágætt bra.. aldrei gaman! Já ég veit.. pælingar..
En já, eftir vinnu minnir mig að ég hafi bara farið heim... Carlos kom svo til mín um 7 leytið.. Ætluðum í bíó á Norbit kl 8 en þegar við komum útí Smáralind þá var strax kominn miði bara: Uppselt á Norbit kl 8 í sal 1. Þannig við vorum bara ooooohh! .. en keyptum okkur miða á sýninguna kl 22:20 :) Fórum heim til Carlosar bara að chilla, horfðum á imbann og buðum Erlu að joina okkur í bíó ;). Sóttum hana svo og fórum í bíó.. :) Carlos sá eikkern gaur sem faintaði bara :o.. Hann stóð bara uppréttur og small svo allt í einu í jörðina! Það var sérstakt.. og mér fannst það soldið fyndið (ekki það að gaurinn hafi faintað sko.. :S það er mean að gera grín að því).. Það var nebbla þannig að allt í kringum strákinn stóð fólk með nachos, popp eða kók í höndunum að reyna að hjálpa honum :D mér fannst þetta sérstakt :haha:!
Myndin var fyndin.. en eins og Erla sagði eftir bíóið þá er það ekki alveg að virka að fara á grínmynd svona seint.. þá hlær maður bara svona  inní sér einhvernveginn, er svo dofinn og svona :P..
Við sáum Silju og systur hennar, þær voru að fara á Norbit í Lúxussal.. djöfull langar mig að prófa bráðum að fara á mynd í Lúxussal! :o Svo sáum við Ásthildi&Rögnu líka.. vissum reyndar að þær voru líka að fara á Norbit á sama tíma og við, þannig þær settust bara við hliðiná okkur ;).
Eftir bíóið skutluðum við Erlu hjem og fórum svo heim til mín bara að chilla eitthvað.. horfa á imbann og þessa háttar :P. Fórum svo að sofa um 3 leytið :)

Sunnudagur:

Vöknuðum um ...hmm...eitthvað leyti:lol: man ekki .. fórum fram í sófann og horfðum á Something's Gotta Give :D Ótrúlega góð mynd með Jack Nicholsson og Keanu Reeves td. :D Svo fóru m&p víst í bakarí þannig við fengum bara nýbakað brauð og læti í morgun-/hádegismat ;). Svo var horft meira á imbann og svo fór Carlos heim um 3 leytið.. Ég beilaði á afmæli hjá Binna mínum :$:$:$ sorrý með það Binni :^) og sit núna bara uppí rúmi, með Friends í tækinu og að blogga :) .. það er ágæææætt :)
Ég er samt alveg nógu stolt af þessu bloggi þannig ég held ég hætti núna.. nenni ekki meiru :)

Bleee píps!

-ásta*


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 19:52:32 / asta

Árshátíð Flensborgar 2007!

Hææ:)

Þessi vika var ágæt bara... vikan reyndar ekki búin.. bara það skemmtilegasta eftir :haha:!
Um helgina gisti Carlos hjá mér.. það er að segja á laugardaginn:D. Við vorum bara að chilla hérna heima, fórum svo í göngutúr um hálf 12 og keyptum okkur naaammeh og solleis í Tjellevu:$. Ég er btw að fíla að það sé opið allan sólarhringinn þar núna!:D Það er alveg ægilega hentugt á tímum :P.

Það var sofið bara frameftir á sunnudaginn.. chillað meira og horft á einhvern fótboltaleik :P eða Carlos... ég var í tölvunni bara á meðan :lol:
Man ekki hvað ég gerði svo meira á sunnudeginum :).

Á mánudaginn var bara skóli og solleeeis.. búið að skreyta fyrir Vakningardagana þegar við komum í skólann! Geðveikt flott maður8|!!:haha: Það er svona Casino-þema í gangi, fullt af Black-Jack-spilaborðum og flottur bar með EKTA áfengi og öllu bara ;) eða svo var mér sagt.. :P maður veit ekki hverju maður á að trúa :P..

Í gær, þriðjudag, var náttúrulega bara skóli.. frí eftir kl. 2 því það var stærðfræðikeppni hjá grunnskólunum... haldin í Flensborg of course ;)
Eftir skóla fór Erla í klippingu.. eða bara litun;) Litaði dekkra eins og hún ætlaði sér alltaf, og það varð geðveikt flott!!! :haha: Aldís skutlaði henni... Svo sótti Aldís mig hjem, sótti svo Fríðu og sóttum Erlu í klippingu. Fórum svo inní Smáralind og Erla sótti Incubus-miðann sinn:haha: og keypti sér Í Fáum Dráttum-bókina fyrir ÍSL-203 :).
Á meðan fórum við Aldís (Fríða fór með Erlu) á kaffihús. Aldís splæsti í kakóbolla handa mér ;*
Erla&Fríða keyptu sér bara ííís og svo fórum við í ljós uppi í Fjarðarsól... Við Fríða að fara í fyrsta skipti og Erla í sitt annað.. svo við algerir núbbar:$. Ekki Erla samt;) Hún var pro! :D ;)
Ég var nú satt að segja bara frekar HRÆDD þegar kviknaði á ljósabekknum! Jæja, ekki hrædd kannski, frekar meira svona skelkuð.. og fór í panik og lagðist bara strax undir um leið og kviknaði....fattaði svoooo að ég hafði GLEYMT að ýta á play á helvítis mongólíska iPodnum mínum :/ :evil: svo ég lá þarna bara í 20mín að EINBEITA mér eins og ég gat að því að halda augunum lokuðum... Ég veit.. ég er lúði:$.

Fórum svo og sóttum pabba Aldísar í vinnuna, og hún skutlaði okkur öllum hjem. Kom samt með heim til mín og beið meðan ég borðaði kvöldmat. Svo spiluðum við eitthvað á hljómborðið og chill bara og fór svo í sund með Carlosi. Vorum bara í Sveppnum að chilla den whole time :P. Það var hressilegt bara ;).

Í DAAAAG voru Vakningadagarnir.:D. Vð Erla vorum búnar að plana hvað við ætluðum í.. byrjuðum á að fara að horfa á Friends.. en nei! Þá tilkynnir gaurinn okkur: "Jah, við eiginlega gleymdum að redda Friendsseríum svooo ég er bara með þætti eða bíómyndir..:lol:" Og allir byrjuðu að öskra: "FAMILY GUY!!!!" ... oooh og við horfðum á Family Guy.. en ekki strax! Neeei.. Fyrst þurfti gaurinn að INSTALLA eikkerjum player svo við gætum horft á þetta.. og loksins þegar því var lokið voru 40 mín liðnar8| 

---------------------
*Hérna tók ég mér pásu... ég byrjaði á þessu bloggi í gær, en svo kom Carlos til mín um 8 leytið. Hann búinn að vera í sundi fyrr um daginn og var að sofna á rúminu mínu svo ég ákvað að stoppa með bloggið og geyma það til kveldsins (seinna bara) og fór að huga að honum ;). Gleymdi svo að klára að blogga þegar hann fór....
---------------------

En meira í gær fórum við Erla svo í Bingó inní sal... þá var Villi úr 700.000 Naglbítum Bingóstjórinn :D .. voða fyndið, nenni samt ekki að blogga neitt nákvæmt um það ;) .. en soldið fyndið sem ég ætla að segja Aldísi (nema að Erla sé búin að því) í sambandi við Bingóið og Benna frænda hennar ;) :P
Fórum svo á fyrirlestur um Forvarnir.. MJÖG góður fyrirlestur verð ég að segja, sá ALLRA BESTI sem ég hef heyrt/þurft að sitja ;)! :D
Man ekki meir svo...
Síðan fór ég bara hjem og eitthvað held ég og svo í tölvuna og svo kom Carlos og já hann fór um hálf 11 :).

Í dag var mæting kl hálf 9. Ég vaknaði korter yfir 8 og var svona 7 mín of sein. Við Erla fórum í konfektgerð.. Lentum í smá vandræðum þegar við vorum að hjúpa bounty-kúlurnar okkar en þetta reddaðist :).
Fórum svo bara að chilla eitthvað og svo á lystarstolsfyrirlestur kl 10. Eftir það var bara meira chill og enn meira chill þar til klukkan varð 1 og við skráðum okkur út (annars fengjum við fjarvist hefðum við bara farið..).
Þá fóru ég, Erla, Davíð og Siggi inní Háskóla Íslands... Ég þurfti að sækja áfengið mitt :lol: hehehe, svolítið skondið :P Þeir skutluðu okkur svo heim til mín. Síðan löbbuðum við Erla til Erlu (eða mamma hennar sótti okkur á miðri leið) .. Fórum í Fjarðarkaup að versla fyrir pizzuna sem við erum í þann mund að fara að byrja á að baka (um leið og Erla kemur til mín;)).. Keyptum líka blöðrur, bæði hjartalaga og afmyndaðar :P.
Svo var mér skutlað hjem og ég fór bara að taka til og svona :).
Núna er ég að bíða eftir Erlu.. það verður smá partý hérna í kveld :D. Lokað samt en það er bara betra....þar sem ég er hostinn.. nenni ekkert að fá eitthvað rugl lið :). En hún Aldís mín er veik hjemme :( .. en ætlar kannski að kíkja ef mamma hennar leyfir.. :).


Ég þarf VIRKILEGA að fara að klára að fixa á mér hárið!!!.... Svooo.. bæjj ;) .. Þetta verður geðveik árshátíð!!! :haha::haha::D

-ásta*


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 23:55:42 / asta

18.feb. ;D

Hæ.

Ég bloggaði fyrr í dag á www.blog.central.is/goldig .. svo endilega kíkið á það ;)Annars var þetta bara mjög fínn dagur í dag ;).


Við Carlos vöknuðum um hálf 2 leytið, mín fór í sturtu bara og skruppum svo heim til mín. Þurfti að skipta um föt, það var svo mikil reykingarstybba af fötunum mínum frá því á laugardagskveldið, þegar við skelltum okkur á salsakveldið á Café Cultura.:P


Síðan kíktum við uppí Max raftækjaverslun, á móti Ikea að kíkja á Davíð Örn;). Hann var alveg að meika það að selja myndavélar og stuff :D. Svooo langaði mig svo á McDonald's :$.. og Carlos líka reyndar svo við fórum á McDonald's í Smáranum. Kíktum svo í Smáralind, skoða í búðir og svona ;)

Mér var svo skutlað hjem bara, mín var svo rosalega dofin eitthvað svo ég hoppaði, eða ekki svo hoppaði:| frekar lagðist bara uppí rúm og kveikti á Friends, 9.seríu sem m&p gáfu mér (þau komu btw frá vikuskíðaferð sinni á Ítalíu í gær;)).*
Glápti bara á imbann þar til pabbi skutlaði mér til Carlosar um hálf 8. Þá var Davíð Örn mættur og svo kom Pétur og sótti okkur.


Fórum í Smárabíó á Ghost Rider. Fannst myndin fín.. frekar mikið ýkt... en fín samt sem áður ;) Bara það að góðir leikarar voru í henni bjargaði myndinni algjörlega! :D

Strákarnir skutluðu mér heim eftir bíóið, ég fór og hélt áfram að horfa á Friends og skellti mér svo í tölvuna;) og er þar enn!

Ætla að hætta þessu núna ;) en endilega gerið eins og ég segi, að kíkja á bloggið á /goldig:haha:

- ástan*

----------------

Btw.. Konudagur og 2 mánuðir hjá okkur Carlosi í dag <3


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 14:44:02 / asta

Laaaangtímabært blogg! :$

Jæjah!  Ég hef ætlað að blogga í laaangan tíma, en aldrei nennt því.. nenni ekki að fara að skrifa eitthvað hrikalega langt blogg um ALLT sem gerst hefur síðan síðasta blogg.. svo ég ætla bara að skrifa um það helsta sem ég man :)
  • Ég&Erla fórum í Kringluna fyrir stuttu. Málið var að kaupa afmælisgjöfina hennar Aldísar okkar, sem átti afmæli þann 26. janúar síðastliðinn ;). Keyptum hana! Vorum mjög ánægðar bara sko.. eigum samt eftir að afhenda henni gjöfina svo hluturinn verður ekki ritaður hér í þetta blogg :P.
    Ég keypti mér líka bol&buxur&nærbuxur, held að Erla hafi bara keypt nærbuxur :).
  • Við ætluðum að afhenda henni gjöfina síðasta laugardag, þar sem ég var ein hjemme þá var smá hittingur heima :). Það var drukkið og haft gaman bara ;) Ég, Davíð, Carlos, Vignir, Sibbi, Danni & Rakel vorum þarna fyrst, svo joinuðu seinna um kveldið Aldís, GunniMagg, Andri (vinur Sibba), Einsi, Thelma, Sara, Bjarni, Aureja & svo Jói. :haha:
    En hún Erla mín varð því miður veik svo við þurftum að fresta því að afhenda Aldísi gjöfina sína :/..
  • Annars fór ég líka í salsa til pabba hans Carlosar með Calla&Binna um daginn einhverntíman. Var ekki að fíla það að fara að dansa þarna svo ég beilaði á því.. :$ Þó svo að ég ætlaði aldrei að dansa og var OFT búin að taka það fram! :D
    Fórum svo hjem til Carlosar og horfðum á Clerks II. Éééég var alveg að fíla hana, hún var samt óttalega róleg mynd, en Calla&Binna leiddist SVOOO að þeir hættu að horfa og fóru að spila bara or some :haha:.
  • Í gær fórum við Calli&Davíð (þó svo að Dabbi kom á eftir okkur.) útá Ásvelli að horfa á 3. flokk karla keppa á móti FH... Töpuðu með 1 :( .. það var fúlt.. eeen ja, ágætur leikur samt svosem :D

Núna sit ég á tölvuganginum í skólanum og rita eitt stykki blogg. Var í þýskuprófi áðan, gekk fremur vel bara :D undarlegt hversu mikið ég man eftir þessu...miðað við að það er alveg ár síðan ég var að læra þetta, ef ekki meira!:o

Ég var búin í prófinu kl. hálf 2, á að vera búin í skólanum í dag kl. 14:05...:lol: Semsagt laaangt síðan ég var búin .. nenni bara ekki í strætó heim :/ Vignir er búinn kl. 15:15 svo ég er bara að bíða eftir honum ;).

Ég heyrði í Lollu minni í gær:haha: Hún taldi upp allt sem hún var búin að kaupa (og fyrir þá sem ekki vita það þá er hún stödd í Flórída og kemur heim þann 22. febrúar) sem var sko MIKIÐ! Hehehe, hún er með einskonar dagbók fyrir verslunarleiðangurinn sinn hvern dag ;). Svo er hún líka búin að kaupa jólagjöfina mína, sem ég fékk að velja:haha: Hollister&co. boli!!:haha: Síðan sagðist hún vera búin að kaupa afmælisgjöfina mína, og gaf mér það að vísbendingu að hún er keypt í búð sem heitir Papya, og allir hjá henni segja að þetta sé mjög "ég" :P. Ooooog svo er hún auðvitað búin að kaupa Djellí-svín handa mér!:haha: Piglet úr Disney-garðinum:haha::haha:!!!

Ég held ég hætti núna bara. :) 

En fyrst vil ég samt óska ykkur öllum til hamingju með Valentínusardaginn í dag, 14. febrúar, og ætla ég einnig að óska Hafdísi minni Hilmarsdóttur til hamingju með 16 ára afmælið ;** <33

-ásta * 


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 17:20:03 / asta

NÝJAR MYNDIR!!!!!!

Ath.
Komnar nýjar myndir...!!
Bæði í Aðalvalmynd, frá því við Lolla fórum í jólagjafaleiðangur fyrir síðustu jól og í Myndir '07.
Þar eru myndir frá fyrirpartýi fyrir Grímuballið & myndir
frá afmælismatarboði hjá Aldísi... :haha:

Endilega kíkið og skrifið í gestó eða kommentið ;)

Allir að hugsa vel til Aldísar sem er í/var í bóklega prófinu í dag! Vona að henni muni/hafi gengið vel! <3

-ásta*


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 19:37:48 / asta

Woooow...PUNKTABLOGG! 8|

Jæja...vitiði hvað!:o? .. Það er svo margt búið að gerast síðan síðustu helgi þannig ég held ég verði bara að skella einu punktabloggi á þetta svo þetta verði ekki margra blaðsíðna (í word) blogg!:lol: ...ég einhvernveginn held það sé ekkert vandamál ykkar vegna ;) fæstir nenna núorðið að lesa löngu bloggin mín...svooo já :)

Enjoy!

  • Ég er að mestu búin að hanga með Carlosi bara.
  • Spila í skólanum og svona;)
  • Svo á miðvikudaginn var Grímuball haldið í Ásbyrgi (kjallaranum á Broadway..)
  • Ég, Erla & Carlos fórum í fyrirpartý hjá Sibba. Sem var bara drullufínt!
  • Ég mun ALDREI aftur kaupa mér Woody's Mexican Lime 8| fkn ógeð sko!! Keypti mér 2 svoleiðis og drakk bara hálfan...reyndi að fá Erlu til að drekka restina ;).
  • Fólk var í því að gefa mér áfengi, sem ég tók við fagnandi höndum of course:$.. :D
  • Við Erla máluðum Carlos í framan! :D Hann var ekki aaalveg ready að fara í ballerínubúningnum, eins og Sibbi bað hann um ;)
  • Hann var með svart í kringum augun, hvítur í smettinu og rauður+blár á nefinu!:D hahaha
  • Það fara að koma myndir frá fyrirpartýinu á næstunni ;). So sit tight :D
  • En já, ég, Erla, Vignir og Kristrún fórum með Carlosi í bíl....og aaaaumingja Erla föst afturí með Kristrúnu og Vigni! :'D Vááá þetta var svo fyndið! :haha: Bara snilldin ein sko!:D
  • Ballið var freeeekar slappt sko! .. Eðlan var að spila og svo einhver DJ í smá stund... drulluléleg mæting, enda bunki eftir af miðum...
  • Svo var manni skutlað heim bara, við sofnuðum öll í bílnum, fyrir utan Carlos auðvitað;) ekki sneddý ef driverinn hefði sofnað bara :o....
  • ...En já.. Kristrún var samt ekki aaalveg ready í að fara að sofa.. og gerði sitt BESTA til að halda Vigni vakandi! :')
  • Jæja..á fimmtudaginn.. hmm.. man ekki alveg hvað ég gerði :| .. svoo ég held ég sleppi þeim degi bara :)
  • Á föstudeginu fór ég að vinna, var SVO EKKI að nenna eeeen maður bara góður og vinna fyrir kaupinu sínu svo maður geti farið til BOSTON í maí!:haha:!!!!
  • Fer með mömmu&saumó held ég.. +Helga Lind.
  • En já, eftir vinnu fór ég bara heim, skellti mér í sturtu og tók mig til....svo fórum við Erla til Aldísar í afmælismatarboð ;) Hún Aldís darling-ið átti 17 ára afmælið sitt á föstudaginn, 26. janúar :haha: ;** luv heeer <33
  • Við vorum svooooolítið miiiiikið seinar :S .. eeen já..:$
  • Aldís var búin að elda kjúlla með osti og sólþurkuðum tómötum og sveppum og örugglega meru8) Vááá, svo gooooott!! :D .. og svo var salat a la Aldís ;) meget gott líka ;).
  • Við settumst svo í "betri stofuna" (;):D) og chilluðum þar bara og svona, fengum okkur svo eftirrétt sem ég hjálpaði Aldísi með! Myntu&súkkulaði-ís kúlur í stóóórri skál! :D .. hahah, ég bræddi óvart ísinn soldið meget :$ eeen þetta reddaðist!:D
  • Svo var það lakkrís&snuddur í skál + Lays-rautt (takk Aldís;*) og annað vont snakk :D og horft á You, me and Dupree..sá reyndar ekki alla myndina, en hún er samt góð :)
  • Það fara líka að koma myndir frá þessu kveldi....so sit tighter!! ;)
  • Carlos&Davíð komu og sóttu okkur eitthvað um eitthvað leytið.. hehe man ekki.. :lol::haha: en Erla fór hjem.
  • Kíktum í partý hjá Gunna Magg, aka. Gunna granna (not as in thin...as in my neighbour:P)
  • Bjartey varð þar áfram en ég, Aldís, Davíð Örn og Carlos fórum eitthvað að kaupa pulsu og svo rúnt bara :).
  • Var komin hjem um 3 leytið..
  • Laugardagurinn var bara chill, or some.. maniggi alveg.. fór að vinna og fór svo heim til Carlosar og horfði á leikinn ásamt Dabba sund og Dabba Örn. Fórum svo í 8 bíó á A Night At The Museum, með Ben Stiller.
  • Góð mynd sko!:D var alveg að fílana :D
  • Fórum svo í keilu...mín tapaði..:$ as usual...man ekki hver vann.. held Dabbi sund.
  • Fórum svo bara á rúntinn og við Carlos hjem til hans. Og eitthvað chill bara :), gisti þar svo.
  • Í dag var það skólinn...svo hjem...svo er ég að fara að gera eitthvað með Carlosi í kveld :)

Læt þetta GOTT heita...hope it was okay;)

-ásta *


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Leitarbox